Notandahandbók Nokia 5230
Útgáfa 6.0
YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI
Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-588 er í samræmi við
grunnkröfur og aðrar kröfur sem gerðar eru í tilskipun 1999/5/EB. Eintak af
yfirlýsingu um samkvæmni er að finna á slóðinni http://www.nokia.com/phones/
declaration_of_conformity/.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Nokia, Nokia Connecting People, Nokia Care og Ovi eru vörumerki eða skrásett vörumerki Nokia Corporation.
Nokia tune er tónmerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið
vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða skjalinu öllu er óheimil nema að
fyrirfram fengnu skriflegu samþykki Nokia. Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur
sér rétt til að gera breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án undangenginnar
tilkynningar.
Java and all Java-based marks are trademarks or registered trademarks of Sun Microsystems, Inc.
Portions of the Nokia Maps software are ©1996-2010 The FreeType Project. All rights reserved.
Þessi vara hefur leyfið MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í
tengslum við upplýsingar sem hafa verið kóðaðar samkvæmt staðlinum MPEG-4 Visual Standard af neytanda í
persónulegum tilgangi og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við MPEG-4 hreyfimynd sem fengin
er hjá hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar annarrar notkunar.
Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis notkun í auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá
MPEG LA, LLC. Sjá http://www.mpegla.com.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM ÞESS UNDIR ENGUM
KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA TAPS Á GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU,
TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM ÞAÐ VILL TIL.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“. UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ
VEITT, HVORKI BERUM ORÐUM NÉ UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á ÞAÐ
MEÐAL ANNARS, EN EKKI EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTI TILTEKINNI NOTKUN.
NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TIL BAKA HVENÆR SEM ER ÁN
UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.
Bakhönnun (e. reverse engineering) hugbúnaðar í tækinu er bönnuð eins og lög segja til um. Að því marki er
þessi notendahandbók inniheldur einhverjar takmarkanir á fyrirsvari, ábyrgðum og skaðabótaskyldu Nokia,
auk takmarkana á fjárhæð skaðabóta, skulu þær takmarkanir einnig ná til sérhvers fyrirsvars, ábyrgða og
skaðabótaskyldu leyfisveitanda Nokia, auk takmarkana á fjárhæð skaðabóta.
Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum.
Kannaðu það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia-söluaðila þínum. Tæki þetta kann að innihalda vörur,
tækni eða hugbúnað sem lýtur útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Breytingar á flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru óheimilar.
TILKYNNING FRÁ FCC/INDUSTRY CANADA
Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi (til dæmis þegar sími er notaður nálægt viðtökutæki).
FCC eða Industry Canada geta krafist þess að þú hættir að nota símann ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíkar
truflanir. Ef þú þarft aðstoð skaltu hafa samband við þjónustuaðila í nágrenni við þig. Þetta tæki er í samræmi
við 15. hluta af reglum FCC. Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda
skaðlegum truflunum; og (2) tækið verður að taka við öllum truflunum sem það verður fyrir, þ.m.t. truflunum
sem geta valdið óæskilegri virkni þess. Sérhverjar breytingar sem Nokia hefur ekki samþykkt berum orðum geta
ógilt heimild notandans til notkunar búnaðarins.
Sumar aðgerðir og valkostir velta á SIM-kortinu og/eða símkerfinu, MMS, eða samhæfni tækja og því um hvaða
efni er að ræða. Viðbótargjald er tekið fyrir notkun sumrar þjónustu.
Tækið getur innihaldið bókamerki og tengla fyrir vefsíður þriðju aðila. Einnig er hægt að skoða vefsíður þriðju
aðila í tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki Nokia og Nokia hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú
vilt heimsækja slíkar síður skaltu beita öryggisráðstöfunum.
/Útgáfa 6.0 IS