Uppfærsla á hugbúnaði um netið
Veldu Valmynd > Forrit > Hugb.uppf..
Með Uppfærslu forrita (sérþjónusta) geturðu kannað hvort einhverjar uppfærslur
fyrir hugbúnað tækisins eru tiltækar og hlaðið þeim niður í tækið.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum getur falið í sér stórar gagnasendingar
(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður
en uppfærslan er ræst.
Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið meðan á hugbúnaðaruppfærslu
stendur, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl. Aðeins er hægt að nota það að
uppfærslunni lokinni og þegar það hefur verið endurræst. Taka skal öryggisafrit af
gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.
Þegar þú hefur uppfært hugbúnað eða forrit tækisins með Software update er ekki
víst að leiðbeiningarnar um uppfærðu forritin í notendahandbókinni eða í
hjálpartextanum eigi lengur við.
Til að hlaða niður tiltækum uppfærslum velurðu . Veldu uppfærslur á listanum
til að afmerkja tilteknar uppfærslur sem þú vilt ekki hlaða niður.
Til að sjá upplýsingar um uppfærslu velurðu hana og síðan .
Til að sjá fyrri uppfærslur velurðu .
Veldu Valkostir og svo úr eftirfarandi:
● Uppfæra í gegnum tölvu — Uppfærðu tækið með tölvunni. Þessi valkostur
kemur í stað valkostarins Ræsa uppfærslu þegar aðeins er hægt að nálgast
uppfærslur með Nokia Software Updater forritinu.
● Skoða fyrri uppfærslur — Skoða stöðu eldri uppfærslna.
● Stillingar — Breyta stillingunum, svo sem sjálfgefnum aðgangsstað sem
notaður er til að hlaða niður uppfærslum.
Hjálp
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
12
● Afsal ábyrgðar — Skoðaðu Nokia leyfissamninginn.