
Samnýting hreyfimynda og myndskeiða
Meðan á símtali stendur skaltu velja Valkostir > Samnýta hreyfimynd:
1. Til að samnýta rauntímahreyfimynd í símtalinu skaltu velja Í beinni.
Til að samnýta myndskeið skaltu velja Myndskeið og myndskeiðið sem þú vilt
samnýta.
Svo hægt sé að samnýta myndskeiðið gæti þurft að breyta því í annað snið. Ef
tækið gefur til kynna að umbreyta þurfi myndskeiðinu velurðu Í lagi. Það verður
að vera myndvinnsla í tækinu til að umbreyting sé möguleg.
2. Ef viðtakandinn er með nokkur SIP-vistföng eða símanúmer með landsnúmeri
vistuð í Tengiliðum, skaltu velja það vistfang eða númer sem þú vilt. Ef SIP-
vistfang eða símanúmer viðtakandans er ekki tiltækt skaltu slá inn vistfang
viðtakandans eða númerið ásamt landsnúmeri og velja síðan Í lagi til að senda
boðið. Tækið sendir boðið til SIP-vistfangsins.
Samnýting hefst sjálfkrafa þegar viðtakandinn samþykkir boðið.
Valkostir þegar myndskeið er samnýtt
Hringt úr tækinu
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
42

eða gera hljóðnema virkan eða óvirkan
eða kveikja eða slökkva á hátalaranum
eða til að gera hlé á/hefja á ný samnýtingu hreyfimynda
til að skipta yfir í fulla skjástærð (stendur aðeins viðtakanda til boða)
3. Veldu Stöðva til að ljúka myndsendingunni. Til að rjúfa símtal skal ýta á hætta-
takkann. Þegar símtali er slitið er samnýting mynda einnig rofin.
Til að vista samnýttu hreyfimyndina velurðu Já þegar beðið er um það. Tækið lætur
vita hvar hreyfimyndin er vistuð.
Ef þú opnar önnur forrit á meðan samnýting hreyfimynda fer fram verður gert hlé
á henni. Til að fara til baka á samnýtingarskjáinn og halda áfram samnýtingu
velurðu Valkostir > Halda samnýtingu áfram á heimaskjánum.