
Stillingar
Til að koma á samnýtingu hreyfimynda þarf P2P- og UMTS-tengistillingar.
Stillingar fyrir tengingar á milli einstaklinga
Tenging á milli einstaklinga (P2P) er einnig þekkt undir heitinu SIP-tenging (Session
Initiation Protocol). SIP-sniðstillingar verða að vera settar upp í tækinu til að hægt
sé að nota samnýtingu hreyfimynda. SIP-stillingarnar fást hjá þjónustuveitunni.
Nauðsynlegt er að vista þær í tækinu. Þjónustuveitan gæti sent þér stillingarnar eða
gefið þér upp nauðsynlegar stillingar.
Til að setja SIP-vistfang hjá tengilið:
1. Veldu Valmynd > Tengiliðir.
Hringt úr tækinu
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
41

2. Opnaðu tengiliðinn eða búðu til nýjan tengilið.
3. Veldu Valkostir > Breyta.
4. Veldu Valkostir > Bæta við upplýsingum > Samnýta hreyfimynd.
5. Sláðu inn SIP-vistfangið á forminu notandanafn@vistfang (hægt er að nota IP-
tölu í stað vistfangs).
Ef þú veist ekki SIP-vistfang viðkomandi geturðu notað símanúmer hans, ásamt
landsnúmerinu, til að samnýta hreyfimynd (ef netþjónustuveitan styður það).
UMTS-tengistillingar
Til að koma á UMTS-tengingu:
● Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að gerast áskrifandi að UMTS-
þjónustunni.
● Gakktu úr skugga um að UMTS-aðgangsstaðastillingar tækisins hafi verið rétt
valdar. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um stillingarnar.