Áskrift að vefstraumum
Þú þarft ekki að fara reglulega á upphaldsvefsíðurnar þínar til að vita hvað er nýtt
á þeim. Þú getur orðið áskrifandi að vefstraumum og fengið sjálfkrafa tengla að
nýjasta efninu.
Veldu Valmynd > Internet > Vefur.
Vefstraumar á vefsíðum eru vanalega auðkenndir með
. Þeir eru notaðir til að
samnýta til dæmis nýjustu fréttafyrirsagnirnar eða bloggfærslurnar.
Farðu á bloggsíðu eða vefsvæði sem inniheldur vefstraum og veldu >
strauminn sem þú kýst.
Uppfæra straum — Þú velur og heldur inni straumnum í vefstraumavalmyndinni
og velur Uppfæra í sprettivalmyndinni.
Setja sjálfvirka uppfærslu á strauma — Á spilunarlistaskjánum velurðu lagið og
heldur því inni og velur svo Breyta > Sjálfvirkar uppfærsluraf sprettivalmyndinni.
15. Staðsetning (GPS)
Hægt er að nota forrit á borð við GPS-gögn til að reikna út staðsetningu eða mæla
fjarlægðir. Þessi forrit krefjast GPS-tengingar.
Um GPS
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla
ábyrgð á nákvæmni þess og viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða
fyrir áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn
og kann að breytast í samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um
borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði
gervihnatta getur einnig haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar,