Ekið á áfangastað
Þegar þú þarft leiðbeiningar skref fyrir skref í akstri getur kortaforritið hjálpað þér
að komast á áfangastað.
Veldu Valmynd > Kort og Akstur.
Ekið á áfangastað — Veldu Áfangastaður og viðeigandi valkost.
Ekið heim — Veldu Keyra heim.
Þegar þú velur Keyra heim eða Ganga heim í fyrsta skipti er beðið um að þú
tilgreinir staðsetningu heimilis. Til að breyta staðsetningu heimilis síðar skaltu gera
eftirfarandi:
1. Á aðalskjánum velurðu
2. Veldu Leiðsögn > Heimastaðsetning > Endurstilla.
3. Veldu viðeigandi valkost.
Ábending: Til að aka án ákvörðunarstaðar skaltu velja Kort. Staðsetningin
þín birtist á miðju kortinu þegar þú ert á ferð.
Breyta skjám á meðan á leiðsögn stendur — Strjúktu skjáinn til að velja Tvívíður
skjár, Þrívíður skjár, Örvaskjár eða Yfirlit leiðar.
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til að stýra
ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.
Kort
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
107