Upplýsingar um staðsetningu
Hægt er að bæta upplýsingum um hvar mynd er tekin sjálfkrafa við aðrar
upplýsingar um hana.
Veldu Valmynd > Forrit > Myndavél.
Myndavél
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
80
Til að setja inn upplýsingar um tökustað allra mynda velurðu Valkostir >
Stillingar > Sýna GPS-upplýsingar > Kveikt.
Það getur tekið nokkrar mínútur að fá staðsetningarhnitin. Staðsetning, byggingar,
náttúrulegar hindranir, auk veðurskilyrða, kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði
GPS-merkja. Ef skrá sem inniheldur upplýsingar um staðsetningu er samnýtt eru
einnig staðsetningarupplýsingarnar samnýttar og þriðji aðili sem sér skrána kann
að sjá staðsetninguna. Tækið þarf netþjónustu til að að geta fengið upplýsingar um
staðsetningu.
Upplýsingar um staðsetningu:
●
— Upplýsingar um staðsetningu eru ekki tiltækar. GPS er áfram virkt í
bakgrunninum í nokkrar mínútur. Ef gervihnattartenging næst og vísirinn
breytist í á þessum mínútum eru allar myndirnar og hreyfimyndirnar sem þá
eru teknar merktar samkvæmt upplýsingum um GPS-staðsetningu.
● — Upplýsingar um staðsetningu eru tiltækar. Upplýsingum um staðsetningu
er bætt við aðrar skráarupplýsingar.
Hægt er að bæta staðsetningarupplýsingum við mynd eða myndskeið ef hnit finnast
í gegnum símkerfinu. Það getur tekið nokkrar mínútur að taka við hnitum. Best er
að vera á opnu svæði, fjarri háum byggingum.
Ef þú samnýtir mynd eða myndskeið með staðsetningarupplýsingum eru þær
upplýsingar einnig samnýttar og staðsetning þín kann því að vera sýnileg þriðju
aðilum sem geta skoðað myndina eða myndskeiðið.
Hægt er að slökkva á hnitamerkingu í stillingum myndavélarinnar.