
Upptaka hreyfimynda
1. Til að skipta úr myndastillingu yfir í hreyfimyndastillingu, ef þörf krefur, velurðu
og hreyfimyndastillinguna .
2. Til að hefja upptöku ýtirðu á myndatökutakkann eða smellir á . Rautt
upptökutákn birtist og það heyrist tónn.
3. Hægt er að gera hlé á upptökunni hvenær sem er með því að ýta á Hlé. Til að
halda upptöku áfram velurðu Áfram. Ef þú gerir hlé á upptöku og ýtir ekki á
neinn takka innan einnar mínútu stöðvast upptakan.
Myndavél
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
82

Notaðu aðdráttartakka tækisins til að auka eða minnka aðdrátt.
4. Ýttu á myndatökutakkann til að stöðva upptöku. Myndskeiðið vistast sjálfkrafa
í Gallerí. Hámarkslengd hreyfimyndar er um 30 sekúndur með
samnýtingargæðum og 90 mínútur með öðrum gæðastillingum.