Stillingar fyrir aukabúnað
Veldu Valmynd > Stillingar og Sími > Aukabúnaður.
Sum tengi fyrir aukabúnað sýna hvaða tegund búnaðar er tengd við tækið.
Veldu aukabúnað og svo úr eftirfarandi:
● Sjálfvalið snið — Til að velja snið sem nota skal í hvert skipti sem tiltekinn
samhæfur aukahlutur er tengdur við tækið.
● Sjálfvirkt svar — Til að tækið svari símtölum sjálfkrafa eftir 5 sekúndur. Ef
hringitónninn er stilltur á Pípa einu sinni eða Án hljóðs er slökkt á sjálfvirkri
svörun.
● Ljós — Til að stilla hvort ljósin lýsi áfram að biðtíma loknum.
Það fer eftir aukabúnaðinum hvaða stillingar er hægt að velja.