Nokia 5230 - Uppfærslur tækisins

background image

Uppfærslur tækisins

Veldu Valmynd > Stillingar og Sími > Símastjórnun > Uppfærslur tækis.
Með Uppfærslum tækisins geturðu tengst við miðlara og fengið

samskipanastillingar fyrir tækið, búið til ný miðlarasnið eða skoðað þær

hugbúnaðarútgáfur og upplýsingar um tækið sem til eru og skoða og vinna með

þau miðlarasnið sem eru til staðar.
Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur með ljósvakaboðum kannt þú einnig að

geta beðið um uppfærslur úr tækinu.
Þú getur fengið miðlarasnið og ýmsar samskipanastillingar frá þjónustuveitu eða

upplýsingadeild. Þessar samskipanastillingar geta verið fyrir tengingu og aðrar

stillingar sem ýmis forrit í tækinu nota.
Til að tengjast miðlaranum og taka við samskipanastillingum fyrir tækið skaltu velja

Valkostir > Miðlarasnið, snið og Valkostir > Hefja stillingu.
Til að búa til miðlarasnið skaltu velja Valkostir > Miðlarasnið > Valkostir >

Nýtt miðlarasnið.
Til að eyða miðlarasniði skaltu velja sniðið og Valkostir > Eyða.
Til að athuga með uppfærslur á hugbúnaði skaltu velja Valkostir > Leita að

uppfærslum.

Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið meðan á hugbúnaðaruppfærslu

stendur, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl. Aðeins er hægt að nota það að

uppfærslunni lokinni og þegar það hefur verið endurræst. Taka skal öryggisafrit af

gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum getur falið í sér stórar gagnasendingar

(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður

en uppfærslan er ræst.

Stillingar

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

135