Símtalsstillingar
Símtalsstillingar
Með símtalsstillingum geturðu valið tilgreindar stillingar í tækinu þínu.
Veldu Valmynd > Stillingar og Hringistillingar > Símtöl.
Veldu úr eftirfarandi:
● Senda mitt númer — Veldu Já til að þeir sem þú hringir í sjái símanúmerið þitt.
Ef þú vilt nota stillingarnar sem þjónustuveitan þín hefur samþykkt skaltu velja
Stillt af símkerfi (sérþjónusta).
● Símtal í bið — Láttu tækið gera þér viðvart ef hringt er í þig á meðan þú ert að
tala í símann (sérþjónusta) eða athugaðu hvort sú aðgerð er virk.
● Hafna símtali með skilab. — Sendu textaskilaboð þegar þú hafnar símtali og
greindu þeim sem hringdi frá því hvers vegna þú gast ekki svarað.
● Texti skilaboða — Skrifaðu stöðluð textaskilaboð sem eru send þegar þú hafnar
símtali.
● Sjálfvirkt endurval — Láttu tækið gera allt að tíu tilraunir til að hringja aftur í
númer sem ekki náðist samband við. Ýttu á hætta-takkann til að slökkva á
sjálfvirka endurvalinu.
● Sýna lengd símtala — Birta lengd símtals meðan á því stendur.
● Samantekt símtals — Birta lengd símtals eftir að því lýkur.
● Hraðval — Kveikt á hraðvali.
● Takkasvar — Kveikt á takkasvari.
● Lína í notkun — Þessi stilling (sérþjónusta) sést aðeins ef SIM-kortið styður tvær
símalínur, þ.e. tvö númer í áskrift. Veldu hvaða símalínu á að nota til að hringja
og senda textaskilaboð. Það er hægt að svara símtölum á báðum línum, burtséð
frá því hvor línan hefur verið valin. Ef þú velur Lína 2 en hefur ekki gerst áskrifandi
Stillingar
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
140
að þessari sérþjónustu geturðu ekki hringt úr tækinu. Þegar lína 2 er valin birtist
táknið þegar tækið er í biðstöðu.
● Línuskipting — Til að hindra að skipt sé á milli lína (sérþjónusta), ef SIM-kortið
styður það. Til að breyta þessari stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.
Mismunandi getur verið hvaða valkostir eru í boði.