Stillingar fyrir skynjara og skjásnúningur
Þegar skynjarar tækisins eru ræstir er hægt að stjórna tilteknum aðgerðum með því
að snúa tækinu.
Veldu Valmynd > Stillingar og Sími > Skynjarastill..
Veldu úr eftirfarandi:
● Skynjarar — Til að ræsa skynjarana.
● Snúningsstjórnun — Veldu Slökkva á hringingum og Kveikja á blundi til að
taka hljóð af símhringingum eða láta vekjarann blunda með því að snúa tækinu
þannig að skjárinn vísi niður. Veldu Sjálfvirk snún. skjás til að snúa því sem birt
er á skjánum sjálfvirkt þegar tækinu er snúið til vinstri eða til baka í lóðrétta
stöðu. Ekki er víst öll forrit og aðgerðir símans styðji snúning á því sem birt er á
skjánum.