
Stöðvalisti
Veldu Valmynd > Tónlist > Netútvarp og Stöðvaskrá.
Það er Nokia sem viðheldur stöðvalistanum. Ef þú vilt hlusta á netútvarpsstöð sem
ekki er á listanum skaltu slá inn upplýsingar um hana handvirkt eða leita að
viðkomandi tenglum á netinu með vafranum.
Veldu úr eftirfarandi:
● Skoða eftir stefnu — Skoða tiltækar tegundir útvarpsstöðva.
● Skoða eftir tungumáli — Skoða á hvaða tungumálum er útvarpað.
● Skoða eftir landi/svæði — Skoða í hvaða löndum er útvarpað.
● Vinsælustu stöðvarnar — Skoða vinsælustu stöðvarnar á listanum.