Stillingar fyrir netútvarp
Veldu Valmynd > Tónlist > Netútvarp og Valkostir > Stillingar.
Tónlist
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
76
Sjálfgefinn aðgangsstaður til að tengjast netinu er valinn með því að velja
Sjálfgefinn aðgangsstaður og úr eftirfarandi valkostum. Veldu Spyrja alltaf ef
tækið á að biðja um að aðgangsstaður sé valinn í hvert skipti sem þú opnar forritið.
Til að breyta tengihraða hinna ýmsu tegunda tenginga skaltu velja úr eftirfarandi:
● GPRS-tengihraði — GPRS-pakkagagnatengingar
● 3G-tengihraði — 3G-pakkagagnatengingar
Gæði útvarpsútsendingarinnar fer eftir þeim tengihraða sem valinn er. Því meiri
hraði þeim mun meiri gæði. Til að forðast notkun biðminnis skaltu aðeins nota
mestu gæði með háhraðatengingum.
10. Myndavél
Þetta tæki styður 1600x1200 punktar myndupplausn. Myndupplausnin í þessari
handbók getur virst önnur.
Kveikt á myndavélinni
Ýttu á myndatökutakkann til að kveikja á myndavélinni.
Myndataka
Stjórntæki og vísar fyrir kyrrmyndir
Á myndglugganum má sjá eftirfarandi:
1 — Stillingarvísir
2 — Aðdráttarstika. Pikkaðu á skjáinn til að kveikja eða slökkva á aðdráttarstikunni.