
Stjórna nöfnum og númerum
Til að afrita eða eyða tengilið, eða senda tengilið sem nafnspjald í annað tæki,
heldurðu honum inni og velur Afrita, Eyða eða Senda nafnspjald.
Til að eyða nokkrum tengiliðum í einu velurðu Valkostir > Merkja/afmerkja til
að merkja tiltekna tengiliði og til að eyða þeim velurðu Valkostir > Eyða.
Til að hlusta á raddmerki tengiliðs velurðu tengiliðinn og Valkostir > Um
raddmerki > Valkostir > Spila raddmerki.
Áður en raddmerki eru notuð skal hafa eftirfarandi í huga:
● Raddmerki eru ekki háð tungumáli. Þau eru háð rödd þess sem talar.
● Nafnið þarf að bera fram nákvæmlega eins og það var hljóðritað.
Tengiliðir
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
51

● Raddmerki eru næm fyrir umhverfishljóðum. Þau skal hljóðrita og nota í hljóðlátu
umhverfi.
● Ekki er hægt að nota mjög stutt nöfn. Nota skal löng nöfn og forðast áþekk nöfn
fyrir mismunandi númer.
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu umhverfi
eða í neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.