Pörun tækja
Veldu Valmynd > Stillingar og Tengingar > Bluetooth.
Hægt er að parast við samhæf tæki og sjá pöruðu tækin með því að opna flipann
Pöruð tæki.
Fyrir pörun skaltu búa til þitt eigið lykilorð (1 til 16 tölustafir) og biðja eiganda hins
tækisins um að nota sama lykilorð. Tæki sem ekki eru með notandaviðmót eru með
fast lykilorð. Lykilorðið er aðeins notað einu sinni.
1. Til að parast við tæki skaltu velja Valkostir > Nýtt parað tæki. Tæki sem eru
á sendisvæðinu birtast.
2. Veldu tækið og sláðu inn lykilorðið. Slá verður sama lykilorð inn í hitt tækið.
3. Nokkrir hljóðaukahlutir tengjast tækinu sjálfvirkt eftir pörun. Til að tengjast
aukahlut að öðrum kosti velurðu Valkostir > Tengjast við hljóðtæki.
Pöruð tæki eru auðkennd með í tækjaleitinni.
Til að tilgreina tæki sem heimilt eða óheimilt skaltu velja úr eftirfarandi:
● Stilla sem heimilað — Hægt er að koma á tengingum milli þíns tækis og
heimilaðs tækis án þinnar vitundar. Þú verður ekki beðinn sérstaklega um
heimild eða samþykki. Notaðu þessa stillingu fyrir þín eigin tæki, s.s. samhæft
höfuðtól eða tölvu, eða tæki þeirra sem þú treystir. táknar heimiluð tæki á
skjá paraðra tækja.
● Stilla sem óheimilað — Samþykkja þarf beiðnir um tengingu frá þessu tæki
sérstaklega hverju sinni.
Til að hætta við pörun tækis skaltu velja Valkostir > Eyða.
Til að hætta við allar paranir skaltu velja Valkostir > Eyða öllum.