
Um Bluetooth-tengingar
Með Bluetooth-tækni er hægt að koma á þráðlausri tengingu við önnur samhæf
tæki, svo sem farsíma, tölvur, höfuðtól og bílbúnað.
Hægt er að nota tenginguna til að senda myndir, myndskeið, tónlist, hljóðskrár og
minnismiða, flytja skrár úr samhæfri tölvu og til að prenta myndir með samhæfum
prentara.
Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota útvarpsbylgjur til samskipta þurfa tækin
ekki að vera í beinni sjónlínu hvert við annað. Hin vegar þurfa þau að vera í innan
Tengimöguleikar
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
115

við 10 metra (33 feta) fjarlægð hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á tengingunni
vegna hindrana eins og veggja eða annarra raftækja.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR sem styður eftirfarandi
snið: bætt hljóðspilun, fjarstýring fyrir hljóð/myndskeið, grunnmyndvinnsla,
auðkenni tækis, upphringisamband, skráaflutningur, almenn spilun hljóðs/
myndskeiða, almennar sendingar á hlutum, handfrjálst, vöktun, aðgangur að
símaskrá, SIM-aðgangur og straumspilun á hljóði í steríó. Til að tryggja samvirkni
milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukabúnað sem eru
viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum
annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu
hennar.
Þegar tækið er læst er aðeins hægt að tengja það við leyfð tæki.