Nokia 5230 - Meðferð tækisins

background image

Meðferð tækisins

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með.

Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.
● Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið

steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa

því að þorna alveg áður en rafhlaðan er sett í það aftur.

● Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar.

Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar þess geta skemmst.

● Ekki skal geyma tækið á köldum eða heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr

endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því og

hann getur skemmt rafrásaspjöld.

● Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í þessari handbók.

Vöru- og öryggisupplýsingar

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

148

background image

● Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð

getur skemmt innri rafrásaspjöld og fíngerðan búnað.

● Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess

að þrífa tækið. Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og þurran klút til að hreinsa

yfirborð tækisins.

● Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í

veg fyrir að þeir vinni rétt.

● Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet.

Ósamþykkt loftnet, breytingar á þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og

kunna að brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.

● Nota skal hleðslutæki innandyra.
● Taktu öryggisafrit af gögnum sem þú vilt geyma, t.d. tengiliðum og

dagbókaratriðum.

● Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig hámarksafköst með því

að slökkva á tækinu og fjarlægja rafhlöðu þess.

Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið eða annan

aukabúnað.