Nokia 5230 - Vinnuumhverfi

background image

Vinnuumhverfi

Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun í

hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er haft að minnsta kosti 1,5 sentímetra

(5/8 úr tommu) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar

tækið er borið á líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki að innihalda málm

og halda ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd

var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf góða tengingu við símkerfið.

Sending gagnaskráa eða skilaboða getur tafist þar til slík tenging er tiltæk. Fylgið

ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum þar til sendingu er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að tækinu. Ekki má

geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt tækinu

því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.
Tækið kann að hitna við til dæmis háhraða gagnatengingar notkun í lengri tíma.

Það er í flestum tilvikum eðlilegt. Ef þú telur tækið ekki vinna rétt skaltu fara með

það til næsta viðurkennda þjónustuaðila.